♥ Spesíurnar ♥

27.01.2010 12:10:54 / Beta

Sælar spesíur nær og fjær!

Hvernig er það Lilja mín, er ekki bráðum saumó hjá þér? ;) Ég er nú komin með smá fráhvörf og þarf að fara að hitta ykkur elskurnar.

Við þurfum svo að fara að plana bústaðarferðina okkar, væri ekki sniðugt að 2-3 tækju að sér skemmtinefnd fyrir ferðina, svo hún verði sem allra skemmtilegust hjá okkur? :lol:

Svo verðum við nú að vera duglegri að kíkja hér inn og slúðra, hehe
Bestu kveðjur og knús, Elísabet spesía


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.12.2009 12:50:31 / spesiurnar

Gleðilega hátíð

Sælar yndislegu Spesíur. 

Hér er nýtt saumóplan :-) Þar sem Anna Soffía er haldin á vit nýrra ævintýra í Noregi að þá tók ég hana út. En nú hittist þannig á að ein heldur saumó 2x á árinu en það mun svo rúlla bara áfram.
Lilja Hafdís - Elísabet - Rósa María - Erla Anna - Sibba - Lísa - Sunna Dögg og svo rúllar það.
Þetta er náttúrulega bara svona viðmið - hverri og einni er auðvitað frjálst að svissa bara innbyrðis ef þarf. Knús knús. Lísa

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.09.2009 12:51:08 / spesiurnar

Annar möguleiki!!

Sælar stúlkur!!

Hvernig er það, kíkja fáar hingað inn lengur?? Varðandi næsta saumó - þá auglýsti ég hann á miðvikudaginn næsta, 9.september...ég mundi svo eftir því að það er alltaf GSA fundur á þeim dögum þannig að ef þið viljið þá get ég fært saumó til fimmtudags???? 

Hvað segið þið um það ,
þið megið eiginlega ráða, hvort við höldum hann á miðvikudag eða fimmtudag ...koma svo stúlkur


meirihlutinn ræður ??? 

Knús Lísa

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.08.2009 18:41:48 / spesiurnar

Saumó EFTIR sumó :)

Mér hafa borist þær fréttir að ástand Spesíanna sé slæmt sökum þess hversu langt er síðan við komum allar saman :d

Því verður að bæta úr því hið snarasta!

Næsti saumó verður því miðvikudaginn 9.september n.k.  - tímasetning um kl.19.30-20.  Haldið að heimili mínu. 

Bestu kveðjur
Lísa Spesía
 


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.07.2009 10:52:01 / Sibba

Hæ spes.

Hvað segið þið gott elskurnar?
Eruð þið ekki búnar að hafa það gott í sumar?  
Mig langar svo að athuga hvort þið getið gefið mér girnilegar gsa uppskriftir sem þið eigið?
 Með von um hjálp
Sibbulína

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.05.2009 22:30:50 / spesiurnar

sumarútilega spesíanna:)

hæ elskurnar mínar:)

Í síðasta saumó var rætt um útilegu í sumar og helgin 26. til 28. júní hentaði flest öllum skildist mér:) og er staðsetningin Varmaland í Borgarfirði:)
Við fórum smá hópur þangaði í fyrrasumar og var það bara æðislegt í alla staði. Sundlaug á staðnum og snyrtileg salerni á tjaldsvæðinu. Mamma og pabbi voru reyndar búin að plana ferð þangað á sama tíma þetta sumar og ætluðum við að fara familyan eins og í fyrra þannig að kannski verður bara mini ættarmót úr þessu:) það er bara gaman!!! því fleiri því betra hehe.... þannig að þið nefnið þetta við gamla settið hjá ykkur hehehe

Ég er allavegana farin að hlakka mikið til!!!
Takið frá þessa helgi og við skundum saman í útilegu:) Gaman fyrir alla krakkana okkar að hittast og hafa gaman saman:)

knús á ykkur
Rósa María


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.05.2009 00:00:22 / Erla Anna

Súrt og sætt:)

Ákvað að skella uppskriftinni bara beint inn, svo ég gleymdi því örugglega ekki :d


Súrsætsósa (fríkeypis) />

>

4 msk sojasósa eða Tamarin sósa
4 msk hvítvínsedik
4 msk Xylitol
2 msk tómatpúrre

10-20 dropar fljótandi sætuefni sirkað
1/2 bolli vatn

grænm.teningur (eða Herbamare)
1 dl diet appelsín
1 tsk balsam edik


Sett í pott og látið bullsjóða


 

Hakkbollurnar


sirka 1/2 pakki pepperoni

sirka 1/2 pakki beikon

500 gr hakk

1 egg


Blandað saman í matvinnsluvél (eða áleggin skorin smátt og blandað við hakkið) Litlar bollur gerðar og brúnaðar að utan á pönnu. Skellt í eldfast mót og inn í ofn í 180 gr. í 20-30 mín.


Borið fram með brosi á vör:p

/>

Njótið vel:haha:




» 1 hafa sagt sína skoðun

07.05.2009 19:25:03 / spesiurnar

engin bústaðarferð þetta vorið:(

Hæ elskurnar mínar.
Því miður verður ekkert af sumarbústaðaferðinni okkar sem við ætluðum að skunda í 22.mai. En við gerum bara aðra tilraun í haust:)

knús knús
Rósa

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.05.2009 08:40:45 / Erla Anna

Sælar sætu:)

Með Maísólinni kemur saumó hjá Erlu Önnu ;) Mig langar að reyna að halda hann áður en að Sunna kveður Ísafoldina svo ég var að velta fyrir mér með 12 Maí, eftir viku. Langaði að hafa hann aðeins fyrr svo að Sunna geti örugglega komist frá pökkunnarstandinu:)

Þannig að, hvernig líst ykkur á 12.Maí klukkan 19:00? Ég ætla að hafa mat og það sem ég ætla að bjóða upp á eru kjötbollur í súrsætri sósu með elduðum lauk og papriku. (Fyrir GSA: kjötbollur: nautahakk, pepperoni, beikon, egg. Súrsæt sósa: hún er frí.) Verð svo með venjulega súrsæta sósu handa hinum :) GSA koma með sitt ferska grænmeti :d

Hlakka til að heyra frá ykkur :lol:

Ps. Mér þykir það voða leiðinlegt en ég þarf að cancella komu mína í sumarbústaðinn. Frændi minn er að útskrifast þessa helgi og hann býr í Súðavík og famelían er að fara þangað í útskriftina. Ég ætlaði að sleppa útskriftinni og koma með ykkur en samviskan mín er eitthvað að stríða mér og mér finnst ég verða að samfagna þessum áfanga með þeim. Hlakka bara til að reyna aftur í haust ;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.04.2009 22:15:47 / Beta

Halló, halló!!! Breytingar!!!

Sælar stúlkur mínar, ég verð því miður að blása saumó af á morgun. Gunnar ákvað að skreppa til Finnlands á fimmtudagsmorguninn svo ég vill ekki henda honum út kvöldinu áður en hann fer í flug. Ég ætla því að finna annan tíma helst í næstu viku. Knús á ykkur allar, heyrumst. Sorrý hvað ég læt vita seint, vissi þetta ekki fyrr. Bestu kveðjur, Beta

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.04.2009 21:34:33 / Beta

Halló aftur!

Ég gæti líka haft saumó á fimmtudeginum eða föstudeginum ef það hentar ykkur betur. Látið mig endilega vita. Knús Beta spes

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.04.2009 21:28:46 / Beta

Saumó hjá mér!!!

Elsku bestu spesíurnar mínar og kæru vinkonur! Ég var að pæla í að hafa saumó miðvikudaginn 22.apríl klukkan 20.00, sem er kvöldið fyrir sumardaginn fyrsta. Vonandi komist þið allar, nú verður gaman að sjá hverjar sauma og hverjar PRJÓNA! :lol:(Hehe, soldið montin með að kunna loks að prjóna)
Hlakka til að sjá ykkur og knúsa, bestu kveðjur Elísabet Hans.


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.04.2009 18:48:47 / Sibba

Stúlkna gleði:)

Kæru vinkonur.

 

 Þá er komið að hinu árlega stelpupartýi

 í Sibbukoti.

 

Það verður haldið þann 1. mai 2009


kl 20:00. Í Tunguseli 3


Þemað að þessu sinni verður fallegt eða

ljótt hárskraut
J

Ég vona að sem flestar sjái sér fært um að

mæta. Fordrykkur verður í boði en annað

gleðivatn verðið þið því miður að koma

með sjálfar
J

 í nafni kreppunnar.

Endilega látið vita ef þið sjáið ykkur ekki

fært um að mæta í þetta glæstilega partý.

Kveðja Sibba.

Allar Óléttar og reglusamar vinkonur

mínar fá óáfengan fordrykk
J

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

07.04.2009 09:06:45 / spesiurnar

sumarbústaðurinn bókaður:)

jæja elskurnar mínar. Nú er ég búin að bóka sumarbústaðinn 22.mai þannig að takið þá helgi frá!!!
En við höfum samt varann á ef eitthver ákveður að taka hann í viku á þessum tíma þá missum við hann frá okkur annars er hann bókaður á mínu nafni:)
Ég er barasta strax farin að hlakka til!!!

love knús og kossar
Rósa María

» 6 hafa sagt sína skoðun

30.03.2009 12:41:47 / spesiurnar

sumó sumó sumó:)

hæ elskurnar minar.
í sambandi við sumarbústaðinn þá er smá problem.... það verður komin sumarleiga á þessum tíma sem við erum að spá í. En kallinn sagði að við gætum pantað hann en ef eitthver vill leigja hann á þessum tíma í viku þá fer sá í forgang og við missum hann.
Þannig að spurningin er ... eigum við að bóka hann og sjá til eða eigum við að skella okkur helgina 24. - 26. apríl???
Ég veit reyndar að það komast ekki allar í apríl og reyndar kæmust ekki allar í mai heldur en við gætum þá reynt að fara aftur í haust og þá kannski komast allar..... en endilega tjáið ykkur um þetta hvað ykkur finnst...

knús í hús
Rósa

» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.